Langur róður
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
26.11.2009 11:53:38 / Spikbolla

Ekkert stress, vertu hress

1.8 kg. fokið þessa vikuna, og ég er komin í 107,7 kg. Var jafn dugleg í ræktinni þessa viku og þá seinustu, þ.e. eini hreyfingarlausi dagurinn var föstudagurinn. Ég þakka kærlega fyrir öll kommentin, og gaman var að sjá marga nýja kvitta fyrir sig. Það er frábært að fá svona hvatningu frá lesendum. Og eins og Lesandi og Anna Helga minntust á, þá er frábært að geta komist á átaksbloggsíður þegar maður sjálfur í átaki, til að fá hvatningu og slíkt frá öðrum. Ég hef alltaf mjög gaman að komast á síður átaksbloggara, og ef einhver ykkar heldur út slíkri síðu, hvet ég sá hinn sama að kommenta og benda á síðu sína :haha:

McApple skrifaði: ,,ég mæli með því að þú notir ekki þá afsökun að slaka á að þú sért að fara í próf.“ Ég er vissulega gjörsamlega sammála því. Auðvitað á maður ekki að notast við neinar afsakanir, en því miður þekki ég það (af biturri reynslu) hversu veikgeðja ég er þegar stressið hellist yfir mig. En! ég ætla að gera allar nauðsynlegar varúðarráðstafanir til að koma í veg fyrir það (því ég mun halda ótrauð áfram í gegnum þetta tímabil án nokkurra afsakanna), ákveða daga til að fara í ræktina (og ekkert mun koma í veg fyrir að ég fari á þeim tíma!) og eiga til nóg af hollu snarli þar sem svengdin virðist hellast yfir mig í svona langri setu. Og hananú 8)

Fyrir alla þá sem sitja yfir skruddunum í desember, og já bara fyrir ykkur allar sem hafið áhuga á hollu og góðu snarli, bendi ég á mandarínurnar. Hef verið að maula þær í vikunni og nammi namm, algjört sælgæti. Og í gegnum tíðina hafa þær alltaf verið snilld að hafa við höndina í jólaprófastressinu. Maður var alltaf andlausari í vorprófunum, haha.

Óska öllum góðrar helgar og hlakka til að heyra frá ykkur

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.11.2009 12:16:25 / Spikbolla

The sun always shines on TV

Jei, það er alltaf svo gaman að komast í nýjan tug! :haha: Þó maður sé rétt að slefast niður fyrir mörkin, haha. Er komin í 109.5 kg, missti semsagt 1.4 kg. þessa vikuna. Ég var örlítið hrædd um að vigtin ætlaði að vera með stæla við mig þessa vikuna... hafði verið að stelast á hana á þriðju- og miðvikudag og þá hafði hún varla haggast, blessunin. Já, ég veit, ég veit, ég á ekkert að vera stelast svona áður en að vigtunardegi kemur :$

Var voða stressuð yfir því að hafa borðað svo mikið brauð í vikunni, sem er eitthvað sem ég geri vanalega lítið af. Til að mynda fór ég á Saffran á sunnudagskvöld. Ég var harðákveðin í því að fá mér grænmetisborgara, en fylgdi svo fordæmi fylgdarmanns míns og fékk mér pizzu. Fékk smá móral eftir á, þar sem ég var alveg að springa eftir hana (og auðvitað hafði ég klárað alla pizzuna, það hafði aldrei hvarflað að mér að hætta bara þegar ég var orðin södd, haha). Þetta var hreinlega of stór skammtur, grænmetis-borgarinn hefði verið passlegur. Svo á mánudag var ég dregin á kaffihús í hádeginu. Ætlaði ekki að fá mér neitt en var síðan svo ferlega svöng þegar á staðinn var komið. Pantaði því ristaða beyglu og fékk ost og tómata með (borða ekki smjör, hef aldrei gert). Fékk svo rosa móral yfir að vera að borða allt þetta magn af hvítu hveiti. Urg, maður er alveg ferlegur, haha. Fékk svo brauð áður í vikunni, svo þetta var orðið óvenju mikið brauðát. Sem er ekki eitthvað sem ég ætla að gera að vana.

Annars hef ég verið mjög ánægð með mataræðið, og brauðátið er langt frá því að vera eitthvað sem setur allt úr skorðum. Fór fimm og sinnum í ræktina í þessari viku, svakalegur dugnaður, auk þess sem ég tók aðeins á því áður en ég fór í sjúkranuddið. Föstudagur var því eini hreyfingalausi dagur vikunnar, ekki slæmt það. Það er eins gott að nýta vel tímann sem ég hef áður en ég legst yfir heimapróf og verkefni. Stressið er svo hættulegt! Bæði getur það orðið til þess að ég telji mig ekki hafa tíma í ræktina, og að ég fari að borða eins og bjáni.

Sat yfir heimaprófi fyrr í mánuðinum. Það kom mér rosalega á óvart hversu svöng ég var alltaf í þessari setu minni. Og það var rosa erfitt að hemja sig. Verð að muna að kaupa helling af góðum ávöxtum og berjum til að hafa við höndina fyrir törnina miklu.

Læt þetta duga að sinni, endilega látið heyra í ykkur.


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.11.2009 10:37:54 / Spikbolla

Vó vó vó!

Er ekkert smá ánægð með vigtina í dag. Er komin í 110.9 kg,  sem þýðir að ég hef misst 3.6 kg. á seinustu tveimur vikum (eða 1.8 kg. á viku, þessar tvær vikur). Ég er því búin að missa akkurat 16 kg. á þessu 10 vikna átaki mínu. Ekki amalegt, það :haha: Það hefur greinilega haft svona feikigóð áhrif að hafa sukkdaginn á föstudag í þetta sinn ;) sem er ágætt því örlögin haga því svo að ég verð að hafa hann aftur á föstudegi í þessari viku, þar sem mér er boðið út að borða annað kvöld.

Einn ein pælingin úr ræktinni... þegar ég fór enn með vasadiskóið í ræktina, hafði ég tónlistina í eyrunum eingöngu á meðan ég var í brennslutækjum, þ.e. ekki á meðan ég var að lyfta eða teygja á. En eftir að iPodinn minn kom til sögunnar, er ég með hann í gangi alveg þar til ég er aftur komin í búningsklefann. Og ég hef fengið svona, að vissu leyti, smjörþefinn af því hvernig það er að vera heyrnarlaus. Maður er svo illa meðvitaður um umhverfi sitt! Ég átta mig oft ekkert á því þegar einhver stendur fyrir aftan mig þar sem ég heyri hann ekki koma, eða ég hef ekki hugmynd um hvort einhver hafi farið, eða bæst í hópinn, þegar ég er að teygja á, o.s.frv. Er oft heldur skrýtin tilfinning 8)

Ég kveð að sinni á þessum fallega fimmtudagsmorgni og hlakka til að heyra frá ykkur.


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.11.2009 19:42:53 / Spikbolla

Helgarhugleiðingar

Sunnnudagskvöld og hin nýja vika lætur heldur betur vita af sér með roki, rigningu og djöfulgangi. Er rosalega ánægð með helgina sem er að enda komin. Fór í ræktina á föstudag. Fannst æðislegt að vera farin að hrista spikið aftur eftir tveggja daga fjarveru frá ræktinni. Fór ekki á miðvikudag þar sem hann var ,,hvíldardagur frá ræktinni.“ Ætlaði svo að fara á fimmtudag, en gat ekki slitið mig frá heimaprófi frá háskólanum sem ég var að vinna. Komst loks á föstudag og fannst það æðislegt. Það er flott að ræktin er orðin það mikill hluti af lífi mínu að ég er alveg í öngum mínum ef ég kemst ekki tvo daga. Ræktin á laugardag var svo algjör snilld! Var bara í brennslu og komst í svo mikið stuð og tók svo vel á því að ég var í hálfgerðri vímu. Mér fannst iPodinn bjóða allt í einu uppá svo rosalega hressandi tónlist, svitinn draup af mér og vímugjafinn var í full swing. Fékk flash back á þá tilfinningu sem einkenndi yfirleitt djammið hjá mér á menntaskólaárunum. Var mjög iðin við kolann á þeim árum og var yfirleitt edrú, þar sem aðal málið var bara að dansa. Ég var meira að segja farin að dilla mér við tónlistina þarna í ræktinni og varð enn þakklátari fyrir að fáir voru að púla á sama tíma og ég :haha:

Nammidagurinn var á föstudag. Yfirleitt finnst mér betra að halda hann hátíðlegan á laugardegi, en vinkona mín, sem er einstæð móðir, var með pössun og dró mig út. En það er flott að hafa nammidaginn stundum á föstudegi, þá er lengra í næstu vigtun ;) Við fórum á Tapas barinn að borða. Er rosalega hrifin af þeim stað en hef ekki farið þangað í langan tíma. Var eiginlega búin að gleyma hversu ótrúlega góður maturinn þarna er. Fyrir þá sem ekki þekkja til hans, þá pantar maður marga litla smárétti. Ég fór yfirum og fékk mér 5 rétti, þ.e. hörpudisk, túnfisk, kengúru, kartöflur og ofnbakaða tómata. Þetta var allt alveg ótrúlega gott, við áttum bágt með okkur, vinkonurnar. Mæli svo eindregið, og rosalega mikið, með þessum stað.

Var á svaka bömmer í síðustu skrifum eftir vigtunina, eins og augljóst var. Margir voru duglegir við að hughreysta mig og ég þakka rosalega vel fyrir það. Ég gat samt ekki kyngt þessum niðurstöðum og steig á vigtina á föstudag. Þá var talan búin að lækka umtalsvert, sem betur fer :lol: Læt samt bara þessa síðustu skráningu standa og bíð spennt eftir niðurstöðum næstu vigtunar.


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2009 10:54:26 / Spikbolla

Vonbrigði

Það hlaut að koma að því að ég yrði eitthvað ósátt við vigtina. Missti bara hálft kíló þessa vikuna og er mjög ósátt við það :cry: Skil heldur ekkert í því, þar sem ég fór fjórum sinnum í ræktina í vikunni, auk þess sem ég púlaði í 40 mín. hjá sjúkraþjálfaranum. Og mataræðið hefur verið í góðum gír. Svo þetta er ráðgáta fyrir mér. Og mikið svekkelsi.

Nóvember byrjar semsagt ekki vel. En vonandi er málið bara það að fall er fararheill :$ 

Ég stefni á að taka næstu viku með trompi.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 40435