Langur róður
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
31.01.2007 11:01:45 / Spikbolla

Ótrúleg vika!!

Já, þetta er sko búin að vera ótrúleg vika, því ég missti 2.5 kíló! :lol: Skil bara ekkert í þessu. En er auðvitað alveg í skýjunum :D og þeim mun staðfastari og ákveðnari í að vinna í mínum málum!8) Ég er meira að segja búin að ná markmiðinu sem ég setti mér fyrir 1. mars, þ.e. að vera komin í 114 kg. Ef (og þegar) hlutirnir ganga eins vel í febrúar er tímabært að fara að endurskoða markmiðin.

Hef því miður ekki verið eins fylgin mér, dugleg og skipulögð þegar kemur að skólanum. Skipuleggjarinn minn (dagbókin) er að fyllast af alls kyns verkefnaskilum, hittingum í verkefnavinnu og ég veit ekki hvað og hvað. Verð að fara að haga mér eins og manneskja og læra!


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 20:06:20 / Spikbolla

Tískusýningar og hungur

Hlunkaðist í ræktina í dag, enda verður maður að vera duglegur fyrir sukkhelgina miklu. Gekk mjög vel. Meikaði þrepavélina og allt saman. Held ég geymi þó róðrarvélina. :lol:

 

 



En mér finnst alveg magnað að fylgjast með sumu kvenfólkinu í ræktinni, þar sem oft er um mikla tískusýningu að ræða. ,,Glætan að ég færi að eyða 15.000 kr. í leikfimis outfit,” hugsaði ég eitt sinn. ,,Ég er ekki að fara í ræktina til að líta vel út.” Svo gat ég ekki annað en glott að bullinu í sjálfri mér. Auðvitað fer maður í ræktina m.a. til að líta vel út, þ.e. að grenna sig. En í sjálfri ræktinni finnst mér best að vera bara í gömlum bol og íþróttabuxum. Mesti lúðinn á staðnum og með mitt vasadiskó! :haha: Hef nú oftar en einu sinni orðið vitni að því hvernig gellur mála sig áður en þær fara að taka á. Hef nú aldrei skilið það. Það getur ekki verið að þær svitni neitt í salnum, því þá fyrst færu þær að líta illa út (þegar málningin fer að leka).

 

 



Kjúklingur og kus kus í kvöldmatinn. Búinn að vera langur og strangur dagur, einn af þessum dögum þar sem maður er sífellt að deyja úr hungri! Borðaði hádegismatinn seint en tveimur tímum seinna var mér illt af hungri. Fékk mér hrökkbrauð með kotasælu í síðdeginu (en það er orðið langt síðan ég fékk mér svo mikið í kaffinu), en tveimur tímum síðar var ég aftur að drepast úr hungri. Skrýtnir, svona dagar. Í gær fékk ég mér bara epli í kaffinu og það var ekkert mál. Sem var reyndar líka svolítið skrýtið, þar sem mér finnst epli sjaldnast seðjandi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 11:51:42 / Spikbolla

Sjúklingurinn ég ;)

Lét mig hafa það að fara í ræktina í gær (sunnudag). Það var assgoti erfitt, skal ég segja ykkur. 8| Fór fyrst í 25 mín. á göngubrettið. Það gekk ágætlega, en ég rölti bara í rólegheitum. Svo var það blessaða þrepavélin, en í henni fór ég alvarlega að óttast að ég myndi detta niður dauð:!: Var að drepast í brjóstkassanum og hálsinum, rétt eins og ég hefði verið að skokka úti í brunagaddi. Gafst upp eftir 16 mín. pyndingar. En hjólaði svo í 20 mín. á eftir.

 

Leið bara ansi vel þegar ég vaknaði í morgun (loksins) svo ég býst við að fara í ræktina í dag líka. Skil ekkert í því hversu hratt vigtin fer niður þar sem ég fór bara í ræktina á þriðju- og sunnudag. Var farin að óttast á tímabili að vöðvar væru farnir að rýrna (en það hefur auðvitað þyngdartap í för með sér). En það gerist nú varla á örfáum dögum, er það? :S Auk þess var ég nú varla búin að móta neinn sérstakan vöðvamassa þar sem ég hef aðallega bara verið í brennslu.

 

Vanalega vigta ég mig bara einu sinni í viku, þ.e. á miðvikudögum. En ég varð að tékka í gær og morgun þar sem ég hafði svo miklar áhyggjur af hreyfingarleysinu. Og svo svindlinu á laugardeginum, hehe. Eins og ég segi, virðist vigtin fara hratt niður. Ég verð nú samt að sitja á mér núna þar  til á miðvikudag (það eru nú bara tveir dagar). Gef engar tölur upp fyrr en þá! :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 01:28:40 / Spikbolla

Svindl

Úbbsí dúbbsí :$ Það hlaut að koma að því að ég hrasaði í átakinu. Eftir tvær frábærar vikur, þar sem allt hefur gengið framar óskum, kom að því. Reyndar var það ekkert skelfilegt. Var með áðurnefnt matarboð í kvöld. Elduðum góðan pastarétt og ég bauð liðinu upp á Coke. Var eitthvað að vesenast og þegar ég settist voru þau búin að hella í glasið mitt líka. Nennti ekki einhverjum móral þar sem ég færi og hellti því niður og svo ég drakk það. Fyrsta svindlið mitt frá 10. janúar. Ekkert hræðilegt, en engu að síður...

Meikaði ekki leikfimi í dag :frown: Vaknaði seint og var voða sjúskuð. Afrekaði þó að þrífa íbúðina, en hóstakast og þyngsli fyrir höfði í allan dag létu hugmyndina um sprikl ekki virka neitt sérlega spennandi. Verð þó hreinlega að fara á morgun, fer vonandi að losna við þennan flensu/kvef viðbjóð :evil:Heilsaði upp á ,,vinkonu" mína, vigtina, í morgun. Hef lést umtalsvert frá seinasta miðvikudegi svo þessi veikindi virðast ekki ætla að eyðileggja fyrir mér. Hjúkk! 8)

Svo nú er bara að halda ótrauður áfram.


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 02:59:29 / Spikbolla

Nammidagurinn eini sanni

Hafði nammidaginn þessa vikuna á föstudegi í stað laugardags. Var að passa frænkur mínar sem vildu endilega panta pizzu, þamba gos og háma í sig ostapopp. Svo ég lét það eftir þeim og tók þátt í því heilshugar 8) Svo nammidagurinn var tekinn með trompi þessa vikuna.

Var hálf slöpp þegar ég vaknaði í morgun (föstudag) svo ég ákvað að láta líkamsræktina eiga sig. Verð að fara á morgun! 8| Fæ gesti um kvöldið, eldum saman og horfum á landsleikinn og söngvakeppnina. Íslenskt sjónarpskvöld með meiru! ;) Eldum pastarétt svo það ætti ekki að vera svo hræðilegt fyrir línurnar. Slæst þó ekki í hópinn þegar liðið fer að þamba bjór.

Er ferlega ánægð með morgunmatinn sem er á boðstólnum hjá mér þessa dagana. Eitt af fáu morgunkornum sem ekki eru uppfull af sykri er hafragrautur og Wheetabix. Mér finnst alveg ferlega gott að stappa banana (eins og fyrir litlu börnin) og blanda saman við Wheetabix og smá mjólk. Fyrir hafragrautinn sker ég epli í öreindir, eða mauka það, og blanda í mjölið áður en ég sýð grautinn. Algjört lostæti! :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 12:05:31 / Spikbolla

Veikindi

Er ferlega svekkt núna, er komin með einhverja pest. Hef engan tíma til að standa í svoleiðis! :^) Samkvæmt planinu mínu fer ég alltaf í leikfimi á fimmtu- og föstudögum. En það fer allt í vitleysu þessa vikuna. Seinustu tvær vikur hef ég líka farið 5x í ræktina. O, jæja.


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 10:37:16 / Spikbolla

Önnur vigtun

Jæja, þá eru niðurstöður komnar úr annarri vigtun, en í þessari viku missti ég tvö kíló. Er komin í 116.5. Er ferlega lukkuleg með það! 3.5 kg. á tveimur vikum. Bjóst einmitt við því að ég myndi missa slatta svona fyrstu vikurnar, enda er líkaminn m.a. að losa sig við vatn og fleira. En... er mjög ánægð.

Þarf líka að vera dugleg núna fram í byrjun febrúar. Þá fer ég í sukkferð og vigtin mun sko ekki fara niður þá vikuna. Mun drekka eins og svampur og borða eins og svín. En þannig bara verður þessi helgi. Vissi af því þegar ég byrjaði í átakinu. Nenni ekki að reyna að vera edrú eða borða bara ávexti og hrökkbrauð þá vikuna. Svo lykilatriðið er að ég detti ekki úr stuði eftir helgina. Verð að vera súperdugleg fyrir og eftir hana.

Heyrumst!


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 15:39:07 / Spikbolla

Töfrandi tónar

Stóðst ekki mátið og fór í ræktina í dag. Hefði nú frekar átt að taka daginn í að læra, hehemm. Gekk nærri fram af mér, var svo dugleg í brennslutækjunum. Fór í róðratækið. Þoli það tæki ekki, en er að reyna að venjast því, enda um að ræða rosalega góða, alhliða hreyfingu.  Hef farið í 10 mín. hingað til en náði að þræla mér upp í 15 mín. í dag. Magnað hvað þetta tæki er eiginlega aldrei notað í ræktinni, það heyrir til undantekninga ef ég sé einhvern í því. Konurnar fara ALLAR ávallt í þrepavélina og (jafnvel) göngubrettið, karlarnir bara á göngubrettið. Soldið skondið.

 

Rak mig á það á fimmtudag hversu háð ég er því að hafa góða tónlist í eyrunum þegar ég er að púla. Gleymdi kasettunni heima (já, þú last rétt, ég er með vasadiskó en ekki MP3 eða iPod):haha: og það var algjör hryllingur. Í ræktinni er hægt að horfa á nokkrar sjónvarpsstöðvar og nokkrar þeirra innihalda tónlistarmyndbönd. En þennan klukkutíma sem ég var þarna var bara um R&B lög að ræða og eitthvað annað álíka rólegt og óspennandi. Mér leið eins og vantaði á mig handlegg 8|. Ég verð reyndar að fara að komast á 21. öldina og fá mér eitthvað annað tæki en vasadiskóið. Finn nefnilega að mér finnst best að hlusta á ákveðna tegund tónlistar þegar ég er í hverju brennslutæki fyrir sig. Því væri gott að vera með einhverja tæknigræju þar sem maður getur skipt um lag án þess að þurfa að spóla og spóla og snúa kasettunni við;). En, eins og ég segi, þessi áralanga reynsla mín (með mörgum, löngum hléum) í ræktinni hefur kennt mér að tónlist peppar mann upp á ólíkan máta í ræktinni. Og hún er alveg nauðsynleg ef maður ætlar sér að púla í langan tíma (en ég er aldrei í skemmri tíma en klst., yfirleitt um eina og hálfa). Hún heldur manni við efnið þegar maður er þreyttur eða leiður og getur veitt manni þvílíkan kraft og orku.

 

Þrepavélin: best að vera hlusta á tónlist með mjög áberandi, sterkum (en samt frekar hægum) takti. T.d. hip hop eða hress danstónlist (m.a. Usher, Salt n’ Pepa, Technotronic, Run DMC, Beastie Boys)

Hjólið: tónlist með mjög hröðum takti, techno dans (m.a. Scooter, Prodigy, Chemical Brothers, DJ Jane, Faithless)

Göngubretti: fer alveg eftir því hvort maður ætlar að rölta eða hlaupa. Ef maður er að hlaupa hentar sama tónlistin og þegar maður hjólar, en ef maður er að ganga rösklega hentar frekar tónlistin sem maður hlustar á í þrepavélinni

Róðravél: er ekki komin með næga reynslu á henni.

 

Ég sé þegar ég lít yfir þennan lista að ég þarf greinilega að fara að koma mér á 21. öldina hvað viðkemur tónlist líka, hehe. Flestir flytjendurnir sem ég tel upp voru upp á sitt besta þegar ég var unglingur :P

Nammidagurinn er í dag. Mér finnst alveg nauðsynlegt að hafa einn slíkan þegar ég er í átaki. Margir telja að það hjálpi brennslunni af stað og svo er líka bara svo gott að geta veitt sér eitthvað svona einu sinni. Ég vil reyndar ekki missa mig í sælgætisáti á laugardögum heldur fæ ég mér einhvern svaaaaka góðan mat, og þá kannski ís eða köku í eftirrétt ef mig langar mikið í eitthvað sætt. Ég fer einmitt út að borða í kvöld með nokkrum vinum svo það verður mjög indælt.

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 15:31:28 / Spikbolla

Metingur

Ég vil þakka öllum fyrir kommentin, alltaf gaman að fá smá viðbrögð frá þeim sem kíkja á síðuna

Dreif mig í leikfimi í dag sem gekk ágætlega. Var bara í brennslu. Held mig enn við sama level í öllum tækjum en hef verið að auka aðeins við tímann. Ætli ég fari svo ekki að færa mig um level í næstu viku. Það er einmitt það skemmtilega við að fara í ræktina, að sjá hvernig manni fer fram. Rétt eins og það er frábær tilfinning að sjá vigtina sýna sífellt lægri tölu. Og um það snýst þetta allt saman. Maður á ekki að fara í mínus yfir því að sporttýpurnar í kringum mann eru að skokka á meðan maður sjálfur röltir, eða eru í level 7 í þrepavélinni þegar maður sjálfur er í 3. Maður er ekki að keppa við þær, maður er að keppa við sjálfan sig. Og það er frábært þegar maður tekur sig til og reynir að bæta sjálfan sig, hvort sem það er í líkamsrækt, vinnu eða persónulegum samskiptum.

 

Jámm, þannig að maður verður að stefna að því; að skoða sjálfan sig á raunsæjan máta og bæta það sem þarf. Árangurinn er svo bara hægt að mæla með því að skoða sig sjálfan, ekki að bera sig saman við aðra. Það er sama hversu fallegur, vel vaxinn, klár, fyndinn, skemmtilegur eða duglegur maður er, maður mun ávallt finna einhvern annan sem er ,,betri.” Svo  það þýðir ekkert að keppa við aðra, einungis sjálfan sig og læra að meta sig sjálfan fyrir það sem maður er.

 

Látum þetta duga af heimspekilegum pælingum í bili! :haha: Farið vel með ykkur


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 10:55:51 / Spikbolla

Fyrstu tölur

Jæja, þá er fyrstu vigtun lokið í þessu massíva átaki mínu. Ég er komin í 118.5 sem þýðir að ég hef misst 1.5 kg. og er ég sátt við það. Nú þýðir ekkert annað en að halda ótrauð áfram! :lol:


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 12:48:51 / Spikbolla

Að hrista spikið...

... gekk ágætlega í dag. Var þó heldur slappari en oft áður, enda ekki við öðru að búast á þessum tíma mánaðarins. Og magnað hvað harðsperrurnar frá æfingum laugardags voru enn miklar. Ég verð að viðurkenna að mér finnst oft ágætt að hafa harðsperrur daginn eftir æfingar, það fullvissar mann um að maður hafi tekið á. En það er ekki þar með sagt að maður vilji vera aumur í marga daga á eftir!! 8|

Fékk mér kjúkling, brokkolí og sætar kartöflur í gær. Algjört lostæti! Enda fæ ég aldrei leið á kjúklingi. Brokkolí er einnig eitt það besta sem ég fæ, og er víst eitt það hollasta sem maður fær :lol: (eins og allt dökkgrænt grænmeti). Í kvöld fæ ég mér fisk, finn vonandi einhvern hollan og tilbúinn rétt í kjötborðinu.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 20:46:19 / Spikbolla

Sunnudagskvöld

Jæja, þá er helgin að enda komin. Er sátt við hana. Á laugardag var nammidagurinn minn. Fór á American Style að borða og fékk mér smá popp um kvöldið. Dagurinn fram að því var þó hefðbundinn átaksdagur hjá mér.

 

Í dag, sunnudag, fékk ég mér drykkjaskyr í morgunmat/hádegismat, hrökkbrauð og trópí í kaffinu. Í kvöldmat fékk ég mér tvær fajitas með baunamauki frá Casa Fiesta, smá osti, örlitlum sýrðum rjóma og taco sósu. Ég er sérstaklega montin þar sem ég fór í barnaafmæli yfir daginn og snerti ekki við öllum girnilegu veitingunum sem voru þar í boði 8)

 

Ég hef verið dugleg í líkamsræktinni þessa vikuna. Ég var í einhverju rokna stuði en einnig vildi ég fara sem oftast áður en ég byrjaði á blæðingum, sem eru á leiðinni. Fór á þriðjudag, fimmtudag, föstu-laugar- og sunnudag. Núna fer háskólinn að byrja að nýju svo ég stefni ekki á að fara svona oft, heldur 3-4x í viku.

 

Á miðvikudag er komið að vigtun og hlakka ég mikið til að sjá hver árangurinn verður :D

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 11:28:32 / Spikbolla

Matardagbók

Mataræðið hefur gengið vel þessa vikuna.

 

Á fimmtudag fékk ég hafragraut í hádegismat (vaknaði seint eins og oft áður:$)

Í kaffinu drykkjarjógúrt og banani

Í kvöldmat spagettí með knorr pastasósu (sama sem enginn sykur eða fita í henni)

 

Á föstudag fékk ég mér banana í morgunmat þar sem ég var að drífa mig í leikfimi.

Í hádeginu var það annar banani og drykkjarskyr

Í kaffinu tvö hrökkbrauð (wasa sport er best!:D) með kotasælu og einn Trópí

Í kvöldmat tær grænmetissúpa og ofnbakað epli með kanil í eftirrétt (með örlítilli olíu)


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 15:41:19 / Spikbolla

Komin á bak?

Jæja, jæja. Ég datt aðeins af hestinum en tel mig reiðubúna að príla á bak aftur. Maður fellur í sömu gryfju og margir aðrir, þ.e. að telja auðveldara að taka á málunum í byrjun nýs árs. En ég finn að þetta hálfkák gengur ekki lengur. Ég var komin  í 117 ágúst haust og missti þrjú kíló. Núna er ég komin í 120! Ég hef lengi verið þétt og verið að glíma við aukakílóin síðan ég man eftir, en ég hef aldrei orðið svona þung. Og ég hef heldur aldrei áður fundið fyrir fylgikvillunum á sama hátt og núna. Ég er farin að fá í hnén og það tekur á að ganga upp tröppur. Ég á stundum erfitt með að standa upp úr djúpum eða lágum sætum/sófum og ég tala nú ekki um þegar ég er að koma mér upp úr gólfinu!

 

Það er skrýtið hvernig maður leyfir sjálfum sér að verða svona feitur. Það er ekki bara það að maður er latur eða að maður sé mikið fyrir matinn, maður verður hreinlega svo blindur. Eins og flestir ættu að vita þá sjá anorexíusjúklingar fyrir sér feita manneskju þegar þeir líta í spegilinn, ég tel að hið gagnstæða hrjái oft okkur sem erum of feit: okkur finnst við miklu grennri þegar við lítum í spegil en við erum í raun. Ég hef fundið það í gegnum tíðina. Vissulega veit maður að maður er feitur og maður finnur hvernig maður bætir á sig kílóunum, en þegar ákveðnum tímapunkti er náð, verður maður alveg dofinn. Það er skrýtið þegar maður sér mynd af sjálfum sér og fær hreinlega áfall. ,,Ég vissi að ég væri feit, en ekki svona!” poppar upp í hugann á manni.

 

Ég er í slíku sjokki núna. Vigtin heima er búin að vera biluð lengi og þegar ég fór á vigtina í líkamsræktinni í gær fékk ég vægast sagt áfall. Núna er að duga eða drepast! Ekkert vesen lengur! Fyrir utan kvillana sem ég taldi upp áður hefur aukaþyngdin auðvitað áhrif á andlegu líðan mína. Mér finnst óþægilegt að hitta fólk eftir langan aðskilnað og vita að það fær áfall við að sjá mig: ,,en hún sem var orðin svo grönn!” Ég er ung manneskja sem hefur ekki verið í neinu sambandi í nokkur ár. Ef ég vil ekki vera piparmey alla ævi þarf ég að taka á mínum málum. Svo er það líka heilsan. Sykursýki, hjartasjúkdómar, krabbamein og gigt (svo dæmi séu nefnd): líkurnar á þessum kvillum aukast ef maður er of þungur.

 

Ég fór loks í leikfimi í gær. Það gekk verr en ég hafði átt von á, en ég er þó allavega byrjuð! Mataræðið hefur verið gott hjá mér. Á mánudag fékk ég mér hafragraut í morgunmat og fisk í kvöldmat (alveg stolið úr mér hvað ég fékk mér yfir daginn!), á þriðjudag var það wheetabix (tvö stykki) með hálfu epli, í hádeginu fékk ég mér drykkjuskyr, eitt hrökkbrauð með osti og 1/2 epli, í kaffinu banana og í kvöldmat eina kjúklingabringu, salat og sætar kartöflur. Í dag: wheetabix í hádeginu (vaknaði seint), hafragrautur með jarðaberjum í kaffinu (ekkert annað til! 8)) og svo aftur kjúklingur og sætar kartöflur í kvöldmat (afgangar frá því í gær).

 

Jæja, látum þetta duga í bili. Ég er full af áhuga og orku núna og mun vonandi halda því við. Það er alltaf svo gaman að fara á vigtina í hverri viku og sjá töluna lækka. Get varla beðið! :lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  46  Alls: 40421