Langur róður
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
31.12.2009 12:47:19 / Spikbolla

Gamlárskvöld

Síðasti dagur ársins runninn upp. Á þessum tíma árs kemur það mér alltaf jafn mikið á óvart hversu hratt tíminn líður. Það er svo stutt síðan maður fagnaði nýrri öld, en núna fer nýr áratugur að hefjast 8| Ótrúlegt alveg.

Ég tók á honum stóra mínum yfir hátíðirnar og át á mig gat. Tók sukkdaginn á spilakvöldinu á jóladag með trompi. Fór svo aftur að spila á annan í jólum og sat á beit þá líka. Svo sukkdagarnir voru þrír þessa vikuna, og tveir þeirra ansi hressilegir, því miður :$ Ætlaði í ræktina á laugardeginum, en þar sem það var eingöngu opið til 12:30 meikaði ég það ekki, enda hafði ég setið við spilamennskuna langt fram á nótt. Og það tók mig tíma að dempa mig niður aftur eftir allt sykurátið og sukkið... ég kom mataræðinu á réttan kjöl en var alltaf svo skelfilega svöng. Fór svo enn og aftur að spila á mánudag, en gat sem betur fer hagað mér eins og manneskja það kvöldið. Mætti með niðurskorið epli og flatköku í nesti og snerti ekki á öðrum veitingum. Sem var sérlega erfitt þar sem uppáhaldið mitt var í boði, þ.e. poppkorn á gamla mátann (poppað í potti).

Varð vör við á mánudeginum (eins og oft áður, svosem) að það er miklu auðveldara að forðast freistingarnar ef þær dúkka ekki upp daginn eftir sukkdaginn. Þegar maður er nýbúinn að troða sig út af sykri og annarri óhollustu er eins og líkaminn öskri á meira, í a.m.k. 24 klukkustundir eftir að átinu linnir. Ég var í þeim ham á laugardag þegar sest var niður við spilamennskuna (og kolféll, þó ég hafi verið búin að lofa sjálfri mér að láta kræsingarnar eiga sig), en sem betur fer var ég komin yfir það versta á mánudag og gat þar af leiðandi látið góssið vera.

Ég var því ansi hrædd við vigtina þessa vikuna, hélt niður í mér andanum er ég steig á hana og vonaði að ég stæði í stað en þyngdist ekki (hafði semsagt engar vonir um að þyngdartap). En, mér til ómældrar gleði, og mikillar undrunar, léttist ég um 0.9 kg. þessa vikuna. Desember, með sitt prófastress og ofurát um jólahátíðina, hefur gengið framar vonum, en ég losaði mig við rúmlega 6 kg á þessu tímabili :haha: Er ánægð með að hafa haldið mínu striki í þessum mánuði og held svo auðvitað ótrauð áfram. Er hrædd um að það verði tveir sukkdagar enn og aftur í þessari viku samt... í kvöld, auðvitað, og svo er ég að fara í einhverja svaka veislu á sunnudag. En svo ættu hlutirnir að fara að falla í fastar skorður.

Óska öllum góðrar skemmtunar í kvöld og gæfuríks, og holls, komandi árs

María skrifaði
Frábær árangur! Alltaf gaman þegar maður missir kg þegar maður á síst von á því. Frábært.
Díana skrifaði
Þú ert ekkert smá dugleg, ég var rosa stolt af þér að geta látið poppið í friði því ég veit hvað þér finnst það gott hehe. Ég byrja sjálf í leikfiminni í dag, vona að mér gangi eins vel og þér :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  46  Alls: 40421