Langur róður
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
10.03.2010 11:36:13 / Spikbolla

Að skríða saman

Vildi bara láta ykkur vita að ég væri enn á lífi. Er loks að skríða saman, held ég, þ.e. úr aumingjaskapnum. En... það er bara dagur 2 í dag sem ég hef hagað mér eins og manneskja. Er loks farin að vinna í því að gera mars og apríl að frábærum mánuðum (þó það sé nú heldur seint í rassinn gripið með mars).

Er á haus þessa vikuna í verkefnavinnu, en ætla mér samt að finna tíma til að kíkja í ræktina. Fór loks í gær, en hafði ekki farið síðan 11. febrúar! 8| Bara bilun. Leið sem ég hefði ekki komið þangað í þrjá mánuði, en ekki í rúmar þrjár vikur eins og raunin er.

Þarf virkilega að taka til í mínum málum. Það sem af er á þessu ári hefur verið ansi slappt og glatað, ég hreinlega hvorki GET né MÁ láta allt falla aftur í sama farið. Ég verð að finna aftur neistann sem hélt mér við efnið fyrir áramótin og lifa með öllum þessum fróðleik sem ég hef unnið mér inn í gegnum tíðina með þessum endalausu átökum alltaf hreint.

Um leið og ég fell í svona sukkrugl, þá þýtur vigtin mín upp úr öllu valdi, svo ég ætla ekkert að vera að ergja mig á henni fyrr en í næstu viku bara...


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.02.2010 21:37:03 / Spikbolla

Hámi hámi hámi hámi....

...hámi, hámi, hámi, hám :$

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2010 01:26:15 / Spikbolla

,,niðurfall" og norðurljós

María og Sylpha komu með frábær komment á síðustu dögum þar sem þær hrósuðu mér í hástert fyrir dugnað og eljusemi, en... ég átti það hrós ekki skilið. Enn og aftur hef ég dottið af baki. Sukkhelgin mikla stóð undir nafni en mataræðið gekk vel á mánudeginum. Á þriðjudag fór svo allt yfirum :$ Þegar ég kom heim á sunnudeginum beið mín verkefni í háskólanum sem ég sat yfir, jafnt á nóttu sem að degi, fram á fimmtudag.  Það var því miður engin leið að komast í ræktina, og ég vorkenndi sjálfri mér svo mikið (æ ó mig auma) að ég byrjaði að sukka á þriðjudeginum. Ég mun svo  ekki komast í ræktina á morgun (laug) né á sunnudag, sökum hittings vegna hópavinnu o.fl., svo allt er hálf glatað hjá mér núna. En! ekkert meira af væli og volæði. Janúar og febrúar eru búnir að vera ansi lélegir mánuðir hjá mér, en mars og apríl verða hrein og tær snilld, ég er alveg viss um það :haha:

Mér fannst ferlega gaman að heyra að María hafi prófað uppskriftina ,,mína“ úr seinasta bloggi. Takk fyrir að láta mig vita, María :d Ég er þrusu ánægð að hafa heyrt að salatið féll svona  vel í kramið hjá þér (enda ekki við öðru að búast, þetta er algjör snilld8)). Það væri frábært að heyra í einhverjum fleirum ef þeir hafa prófað (og líka bara að heyra í þeim sem vilja segja hæ).

Annað kvöld (laugardag) mun ég leggja land yfir fót, eða kannski öllu heldur leggja malbik undir dekk og fara í norðurljósaleiðangur. Það er útlit fyrir að það verði dansandi norðurljós um kvöldið og ég ætla að þvælast með einn útlendinginn í smá eltingaleik. Svo endilega krossleggið fyrir mig fingur um að leitin gangi vel.

Og endilega krossleggið líka fingur fyrir mig næsta föstudag þegar ég stíg á blessaða vigtina. Lét hana eiga sig í morgun, guð má vita hvaða hryllingstölum hún mun slengja framan í mig næst 8|

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2010 10:49:38 / Spikbolla

Í startholum fyrir sukkið

Tæplega kíló fauk þessa vikuna og ég hef loks náð 3 tuga kílóamissinum. Núna eru sirka tveir tugir eftir. Mun samt örugglega ekki missa neitt þessa vikuna. Er að fara í sumarbústaðaferð í hópi föngulegra vina um helgina þar sem verður fátt annað gert en að liggja í leti og éta, éta og éta. Gerist varla betra, þó ég þekki af fenginni reynslu að erfitt verði að komast í gírinn á mánudeginum. Verður líka voðalega notalegt að sitja í pottinum með bjór í hönd, en ég hef ekki fengið mér deigan dropa af áfengi síðan um verslunarmannahelgina.

Prófaði geggjað salat í vikunni sem ég varð að deila með ykkur. Það var titlað sem ,,suðrænt salsa“ og í uppskriftinni var það meðlæti með fiski, en auðvitað er þetta geggjað með öllum mat og jafnvel sem sér salat. Hvet alla til að prófa, er alveg fáránlega gott.

3 tómatar, fræhreinsaðir og smátt skornir
1 lárpera, smátt skorin (og/eða biti af ferskum ananas)
1 mangó (má nota frosið) smátt skorið
2 hvítlauksrif, marin
1/2 rauðlaukur, smátt skorinn
1-2 msk. límónusafi
1/2 dl. ferskt kóríander
salt og pipar
Blandið öllu saman og gott að kæla um stund áður en borið er fram
 
Óska öllum góðrar skemmtunar um helgina.


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.02.2010 11:05:49 / Spikbolla

Áfram ég!

Eins og einhver hefur kannski tekið eftir, þá vitna ég hér að ofan í orð Sylphu í síðustu athugasemd hennar: ,,áfram þú.“ Mér fannst það asggoti sniðugt og vel mælt, en svona á maður að hugsa er það ekki? ,,Áfram ég!“ Að vera helsti stuðningsmaður sjálfs síns, hvetja sjálfan sig áfram og hafa trú á sjálfum sér. Og ekki fara yfir um þó eitthvað klúðrist í lífinu eða eitthvað mætti gera aðeins betur, heldur halda áfram að vera  dyggasti og mesti stuðningsmaður sjálfs síns.

Sá þátt um daginn með Oprah þar sem hún ræddi við tvo aðila sem höfðu tekið sig á, misst helling af þyngd og náð að punda öllu á sig aftur. Ég fór einmitt í gegnum það ferli 2007. Ég fór úr 120 kg. niður í 84, en svo tveimur árum síðar var ég komin í 127 kg. Veturinn 2007-2008 bætti ég slatta á mig, en svo þegar hnéð gaf sig í nóvember 2008 sökk ég í sjálfsvorkunn og volæði og þá hlóðst þyngdin utan á mig á ógnarhraða. En, ég hef svosem farið útí þá sálma áður á þessari síðu. En hjá Opuh kom Kirstie Alley leikkonan, en hún fór í átak á vegum Jenny Craig samtakanna í USA og missti rúmlega 37 kg. á 2 árum. Svo tveimur árum síðar hafði hún bætt öllu á sig aftur, og meira til. Hún sagðist hafa fallið í þá gryfju að hafa verið bara að stefna að ákveðnu marki í átakinu sínu og svo ,,fagnað“ þegar því var náð með því að éta og hætta að hreyfa sig. Svo var rætt við mann sem hafði verið kominn uppí 500 kg. og náði svo að komast niður í 90 kg, en viti menn... hann bætti öllu á sig aftur. Hann, rétt eins og Kirstie, hafði verið í einhverju kapphlaupi og svo ,,verðlaunað“ sjálfan sig þegar takmarkinu var náð með því að háma í sig.

En þetta er einmitt það sem ég þarf svo að hafa í huga þegar ég kemst í þyngd sem ég er sátt við. Þegar því takmarki er náð fer virkilega að reyna á mig. Það er margfalt erfiðara að reyna að halda sér stöðugum (þegar maður á í vandræðum með þyngdina, þ.e.a.s.) heldur en að grenna sig. Það að halda sér stöðugum... maður hefur ekkert lokamark til að stefna að, það vantar alla tilhlökkunina við að stíga á vigtina í hverri viku, og mann vantar þennan eldmóð og stolt sem maður finnur þegar gengur vel í átakinu. Þannig að við sem erum í átaki verðum að hafa þetta í huga. Eins og alltaf er verið að hamra á ,,við erum ekki í átaki heldur að breyta um lífsstíl.“ Og það sem ég hef verið að röfla um hér, þá er maður ekki kominn að neinni endalínu þegar ,,óskaþyngdinni“ er náð, heldur er balið fyrst að byrja þá. Maður má ekki hlaupa í spreng (í mínu tilfelli, róa ;)) að einhverri ímyndaðri endalínu og slaka svo á þegar að henni er komið, því þá hefst erfiðið sem mun vara miklu lengur en þyngdartapið.  En! að sama skapi má maður ekki neita sér um allar þær góðu tilfinningar, stolt og gleði sem fylgir því þegar vel gengur í átaki.

En jæja, er búin að pikka frá mér allt vit. Steig á vigtina blessaða í morgun, en ég missti 2 kg. þessa vikuna. Svo ég er farin að nálgast 3 tuga kílóamissi, sem er spennandi :). Þakka kærlega fyrir commentin við síðustu færslu, það er alltaf frábært að heyra frá þeim sem kíkja við. Og ekki gleyma...

... áfram þið!


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2010 02:28:06 / Spikbolla

Áfram gakk!

Er loks vöknuð til lífsins aftur. Síðasta vika var alveg skelfileg! Ég át og át í rúma viku (frá föstudegi til og með sunnudags) og fór ekkert í ræktina :frown: Fyrst voru veikindin mér til trafala og svo þegar ég var orðin nokkuð hress um síðustu helgi, kom ég mér bara ekki af stað. Það er ferlegt þegar maður leyfir sjálfum sér að hrapa svona niður í eymd og volæði. En! það þýðir ekki að fara of mörgum orðum um það að sinni, ég vona bara að ég sé búin að fá útrás fyrir þetta bull í mér og hagi mér eins og manneskja núna. Ég þakka kærlega fyrir uppbyggileg og hvetjandi athugasemdir við síðustu færslu

Steig loks á vigtina í morgun (föstudag). Eftir fjóra daga í átaki (en ég kom mér loks á beinu brautina á mánudag) er ég 700 grömmum þyngri en í síðustu vigtun, 14. jan. Er ekki eins skelfilegt og ég óttaðist, en auðvitað ekkert til að hrópa húrra yfir heldur. Ætla að halda mig við vigtun á föstudögum a.m.k. tvær næstu vikur, svo breyti ég sennilega til aftur. Endalaust hringl á mér.

Þessi vika er búin að vera ansi skemmtileg hjá okkur Íslendingunum hvað handboltann varðar. Ég, sem nenni aldrei að horfa á neinar íþróttir, missi mig alltaf yfir landsleikjum í handbolta. Horfði á leikinn gegn Rússum í ræktinni. Það var ansi skondin upplifun að prófa það, en ég þurfti að nýta tímann vel, enda nóg að gera í skólanum og svona. Það var brjálað að gera í ræktinni og allir að horfa á leikinn. Á hlaupabrettunum við hlið mér reyndi fólk að hemja læti sín og gleði. En það var fínt að það skyldi hafa verið Rússaleikurinn sem ég horfði á í ræktinni (en ekki einhver annar) þar sem úrslitin voru ljós svo snemma og spennan langt frá því að vera eins yfirgnæfandi og í hinum leikjunum. Ég mun sko horfa á laugardagsleikinn heima við, kemur ekkert annað til greina.

 Áfram Ísland!


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.01.2010 18:22:12 / Spikbolla

Veikindi og veiklyndi

Því miður er ég með allt niðrum mig þessa vikuna. Var að drepast úr leti um helgina, svo ég fór ekki í ræktina, og var með svakalega átþörf sem ég því miður lét eftir mér. Vaknaði svo veik á mánudeginum. Hef ekkert getað komist í ræktina, hef rétt svo meikað að dröslast í skólann, en hef étið á mig gat. Þó ég sé veik missi ég sjaldan matarlystina, og þegar ég kemst ekki í ræktina á ég auðvelt með að missa tökin á mataræðinu (akkurat þegar ég þarf að passa enn betur upp á það).

Svo ég hef verið full af afsökunum og þessi vika búin að vera algjör martröð. Ætla ekki að ergja mig á vigtinni þessa vikuna. Er að vinna í því að komast aftur á bak, en dagurinn í dag (miðvikudagur) hefur ekki gengið sem skyldi.

Vonandi verður betra í mér hljóðið í næstu viku.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.01.2010 11:02:45 / Spikbolla

Harðar sperrur!

Sælar og blessaðar allar (enda geri ég ráð fyrir að a.m.k. stór meirihluti lesenda, þó sennilega allir þeirra, séu kvenkyns :haha:). Það var frábært að fá 6 komment við síðustu færslu, ég þakka kærlega fyrir þær allar. Já, það er svo sannarlega æðislegt að vera komin í tveggja stafa tölu, þó það sé voðalega furðulegt að ég hafi náð þeim áfanga í síðustu viku. Vanalega þegar ég er í átaki og sukka örlítið meira en mér leyfist, þyngist ég a.m.k. um hálft kíló. Það var því voðalega furðulegt að geta sukkað í fjóra daga en samt lést um 1.7 kg. En, eins og ég minntist á síðast, hef ég kannski verið að missa smá vöðvamassa líka. Ég bætti úr skorti á styrktaræfingum á mánudag og í gær, miðvikudag og er að drepast úr harðsperrum núna, haha. Ég er þó enn bara að vinna með æfingarnar sem sjúkraþjálfarinn kenndi mér til að styrkja fætur (og lyfta í nokkrum fótatækjum). Verð svo að fara að drífa mig í að vinna með allan líkamann sem fyrst, það þýðir ekki að vera alltaf bara í brennslunni :$

Þar sem hnéð gaf sig fyrir ári og hefur reglulega verið með stæla, hef ég verið voðalega rög við að fara í þrepavélina. Sem mér finnst mikill bömmer því ég vil endilega fara að koma með meiri fjölbreytni í brennsluna hjá mér, ekki bara göngubrettið og hjól (eru tvö tegund af hjóli sem ég nota, og hreyfingin og átakið afar ólíkt í þeim, en engu að síður...). Ákvað að koma mér niður í hundraðið eða svo í þyngd áður en ég færi að prófa þrepavélina, til að álagið á hnén væri ekki eins mikið. Hef verið að prófa að stíga á vélina stundum að undanförnu, en því miður hefur það ekki gengið. Það er ekki vegna hnésins, eins og ég hafði óttast, heldur ökklans. Hann er alltaf að stríða mér eitthvað og virðist þola illa þessa hreyfingu sem fylgir þrepavélinni, en ég fæ alltaf skelfilega sáran sting í ökklann (og í liðamótin við ristina) og verð voða hrædd um að ég sé að koma fætinum í þvílíkt ólag, og gefst því alltaf upp.  En... það þýðir ekki að súta það, ég reyni aftur síðar og læt mér hjólin og brettið duga :s (en tæki eins og skíða- eða róðrarvélin eru því miður heldur ekki eitthvað sem ég get notast við heldur).

En nóg komið af barlómi. Steig á vigtina í morgun og er komin í 98.7 kg. sem þýðir 1 kg. í missi þessa vikuna. Er ánægð með það, því þótt vikan hafi verið alveg 100% hjá mér átti ég ekki endilega von á miklum léttingi, þar sem allt var svo ferlega furðulegt síðast. Ég er búin að missa rúmlega 28 kg. á 19 vikum og er alveg í skýjunum yfir því. Stefni á að komast í ca 77 kg., svo ég á tæplega 22 eftir núna. Guðbjörg Stefanía spurði hvort ég hefði eitthvað sérstakt prógram. Ég bendi á að kíkja á færsluna frá 4. október 2009, þar sem ég fer aðeins yfir skipulagið hjá mér, en linkurinn er: http://spikbolla.blogcentral.is/eldra/2009/10/

Loks núna í dag fer skólinn að byrja. Hef verið að kíkja yfir kennsluáætlarnir og önnin virðist ætla að vera ansi strembin hjá mér. Ég verð bara að fara að haga mér eins og manneskja strax og nýta kvöldin og helgar í að læra, svo ég verði ekki ein taugahrúga þegar líður á vorið. En fyrst og fremst verð ég að passa uppá ræktina og mataræðið, þó það komi niður á náminu ;) Hvet ykkur til að kvitta þegar þið lítið við og óska öllum góðs gengis í baráttunni sinni við aukakílóin.


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.01.2010 11:25:17 / Spikbolla

Ma, ma, ma er bara orðlaus!

Gleðilegt ár allir saman! Þakka fyrir stuðninginn og innlitið á árinu sem var að ljúka, og vona að það fari ekki minnkandi á nýja árinu :lol: Það er sérlega gaman að sjá að Díana er farin að kíkja aftur á síðuna og, fyrst og fremst, farin í átak. Ég óska henni alls hins besta á þeim vettvangi.

Síðastliðin vika hefur verið algjört klúður hjá mér hvað mataræðið varðar. Ég fékk vissulega veislumat á gamlárskvöld, ásamt ís og konfekti. Vissi svo að það yrði annar sukkdagur hjá mér á sunnudag, og þá var eins og ég hafi tekið þá (ó)meðvituðu ákvörðun að leyfa allri helginni að vera ein allsherjar áthátíð. Á föstudag fékk ég allt í einu brjálaða löngun í popp og kók, sem ég lét eftir mér. Réðst svo á súkkulaðitrufflur sem ég átti inní skáp, þar sem ég hafði séð þær í hillingum í langan tíma. Ég fékk svakalegan móral eftir á, en það aftraði mér ekki í að haga mér eins og svín á laugardeginum! Sunnudagurinn var svo líka eitt allsherjar át. Ég þakka fyrir að hátíðirnar eru búnar. Hafði staðið mig svona... nokkuð þokkalega í desember, en mælirinn var greinilega orðinn fullur núna um áramótin. Leist ekkert á sjálfa mig um helgina, hvernig ég tróð mig út, næstum umhugsunarlaust. Ég má alls ekki láta eftir mér að fara aftur í þann gír! 8| Ég ætla mér að halda áfram að léttast og finna svo leiðir til að halda mér í þyngd sem ég er sátt við. Og hananú:!:

Ég náði mér á rétt strik á mánudag, borðaði eins og manneskja og hamaðist í ræktinni. Komst bara fjórum sinnum í ræktina í þessari viku, en undanfarið hef ég verið að fara 5-6 sinnum. Ég trúði því varla eigin augum er ég steig á vigtina í morgun. Ég var búin að missa 1.7 kg. Og ekki nóg með það... ég var loks komin í tveggja stafa tölu, eða 99.7 kg. Mér finnst nú heldur skuggalegt að ég hafi misst þessa þyngd eftir svona mikla ruglviku og grunar jafnvel að vöðvar hafi verið að rýrna, sem skýri þyngdartapið að einhverju leyti. Ég hætti að fara til sjúkra-þjálfarans rétt fyrir jól, og hef því miður ekki komið mér í að gera styrktaræfingar síðan. Ég veit samt ekki hversu fljótir vöðvar eru að rýrna, eða hversu mikla vöðva ég hafði verið að byggja upp hjá  sjúkraþjálfranum, þar sem ég notaði ekki þung lóð eða slíkt, snérist mest um að styrkja aðeins vöðvana við liðamótin og svona.

En! ég ætla ekki að velta mér uppúr því endalaust. Byrja strax í dag á styrktaræfingunum aftur og fagna því heilshugar að vera loks komin í tveggja stafa tölu. Það er ekki amalegt að byrja nýja árið á því. Ég sveif um á rósrauðu skýi milli jóla og nýárs þegar ég fór í gegnum fataskápinn minn og fatakassann sem ég hafði geymt niðrí geymslu. Ég komst í fullt af ,,nýjum“ fötum, sem er ekkert smá skemmtileg tilfinning. Ég pakkaði svo niður helling af fötum sem eru orðin of víð. Núna er bara að hlakka til þess að komast í þá leppa sem enn eru of þröngir.

Hlakka til að sjá hvaða furðufréttir vigtin mun segja mér við næstu mælingu.


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.12.2009 12:47:19 / Spikbolla

Gamlárskvöld

Síðasti dagur ársins runninn upp. Á þessum tíma árs kemur það mér alltaf jafn mikið á óvart hversu hratt tíminn líður. Það er svo stutt síðan maður fagnaði nýrri öld, en núna fer nýr áratugur að hefjast 8| Ótrúlegt alveg.

Ég tók á honum stóra mínum yfir hátíðirnar og át á mig gat. Tók sukkdaginn á spilakvöldinu á jóladag með trompi. Fór svo aftur að spila á annan í jólum og sat á beit þá líka. Svo sukkdagarnir voru þrír þessa vikuna, og tveir þeirra ansi hressilegir, því miður :$ Ætlaði í ræktina á laugardeginum, en þar sem það var eingöngu opið til 12:30 meikaði ég það ekki, enda hafði ég setið við spilamennskuna langt fram á nótt. Og það tók mig tíma að dempa mig niður aftur eftir allt sykurátið og sukkið... ég kom mataræðinu á réttan kjöl en var alltaf svo skelfilega svöng. Fór svo enn og aftur að spila á mánudag, en gat sem betur fer hagað mér eins og manneskja það kvöldið. Mætti með niðurskorið epli og flatköku í nesti og snerti ekki á öðrum veitingum. Sem var sérlega erfitt þar sem uppáhaldið mitt var í boði, þ.e. poppkorn á gamla mátann (poppað í potti).

Varð vör við á mánudeginum (eins og oft áður, svosem) að það er miklu auðveldara að forðast freistingarnar ef þær dúkka ekki upp daginn eftir sukkdaginn. Þegar maður er nýbúinn að troða sig út af sykri og annarri óhollustu er eins og líkaminn öskri á meira, í a.m.k. 24 klukkustundir eftir að átinu linnir. Ég var í þeim ham á laugardag þegar sest var niður við spilamennskuna (og kolféll, þó ég hafi verið búin að lofa sjálfri mér að láta kræsingarnar eiga sig), en sem betur fer var ég komin yfir það versta á mánudag og gat þar af leiðandi látið góssið vera.

Ég var því ansi hrædd við vigtina þessa vikuna, hélt niður í mér andanum er ég steig á hana og vonaði að ég stæði í stað en þyngdist ekki (hafði semsagt engar vonir um að þyngdartap). En, mér til ómældrar gleði, og mikillar undrunar, léttist ég um 0.9 kg. þessa vikuna. Desember, með sitt prófastress og ofurát um jólahátíðina, hefur gengið framar vonum, en ég losaði mig við rúmlega 6 kg á þessu tímabili :haha: Er ánægð með að hafa haldið mínu striki í þessum mánuði og held svo auðvitað ótrauð áfram. Er hrædd um að það verði tveir sukkdagar enn og aftur í þessari viku samt... í kvöld, auðvitað, og svo er ég að fara í einhverja svaka veislu á sunnudag. En svo ættu hlutirnir að fara að falla í fastar skorður.

Óska öllum góðrar skemmtunar í kvöld og gæfuríks, og holls, komandi árs


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2009 10:16:59 / Spikbolla

Aðfangadagsblogg...

Vá, það er bara kominn aðfangadagur. Æðislegt :d Steig á vigtina í morgun á þessum helga degi  þegar maður á bara að hugsa um ást, frið og kærleika en ekki kílóafjöldann. Það minnir mig reyndar á eitt skondið atvik! Einhvern tímann í fyrra þegar ég var að horfa á sjónvarpið hoppaði myndefnið á skjánum allt í einu yfir á Omega stöðina (sem var ansi furðulegt þar sem ég var ekki að reka mig í fjarstýringuna eða neitt slíkt). Og ekki nóg með það, heldur var akkurat verið að tala um hollan lífsstíl á stöðinni og hvernig eigi að losna við aukakílóin! Mér fannst það ferlega fyndið, og ef ég væri nú trúuð manneskja, hefði ég tekið þessu sem tákni frá Guði, það er ekki spurning, enda langt yfir kjöþyngd og alltaf á leiðinni að reyna að taka mig á. Það var mikið rætt um hvernig við eigum að rækta líkamann, Guði til dýrðar, sem var soldið skemmtileg pæling. Maðurinn sem var til viðtals kynnti svo bók sína sem bar nafnið ,,The ‘What would Jesus eat‘ cookbook.“ Haha, fannst það ansi skondið :haha:

En jæja, ef að er ekki við hæfi að koma með þessa sögu á aðfangadag, þá veit ég ekki hvenær það ætti að vera. En allavega, steig á vigtina í dag á þessum helga degi og varð ekkert smá hissa á niðurstöðunum. Missti 1.9 kg. þessa vikuna (eða á 6 dögum reyndar) og er því komin í 102.3 kg. Er auðvitað alveg skýjunum yfir því. En því miður mun þessi vika einkennast af sukki. Það verður auðvitað veislumatur í kvöld, sem ég mun gera góð skil. En á morgun fer ég á mitt árlega spilamaraþon og það mun allt fljóta í snakki, gosi og sælgæti (áfengi reyndar líka, en ég læt það eiga sig). Þannig að það verða tveir heljarinnar sukkdagar. Og svo fer ég í matarboð á annan í jólum... En ég er alveg staðráðin í að standa mig eins og hetja þá, láta gosið eiga sig og borða pent. Það er nú hvort sem er bara lambalæri í matinn, sem er ekki í uppáhaldi hjá mér (þó það sé ágætt greyið).

Svo er bara að haga sér eins og manneskja fram að gamlárskvöldi, og svo fer lífið að falla í fastar skorður.

Óska öllum gleðilegra jóla! Ekki vera hrædd við að éta á ykkur gat yfir hátíðirnar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2009 10:40:52 / Spikbolla

Svindhelgi...

Það hlaut að koma að því að ég svindlaði smá í þessu átaki, en helgin varð svo sannarlega áthelgin mikla (eins og titill seinustu færslu  óttaðist). Var búin að standa mig eins og hetja í 14 vikur án þess að svindla í eitt einasta skipti, en brá út af vananum þessa viku. Eins og ég sagði síðast frá fór ég á jólahlaðborð á föstu- og sunnudag. Ég var staðráðin í að haga mér vel á föstudeginum, drekka bara vatn, fá mér ekkert of mikið að borða og láta eftirréttinn eiga sig. Svo þegar ég kom á staðinn  sá ég að það voru engar vatnskönnur á borðum, og ég nennti ekki að vera að vesenast ein með glasið mitt inní eldhús. Svo að ég, á örskotsstundu, ákvað að fá mér gos með matnum og láta það eftir mér að fá mér smákökur í spilakvöldinu á eftir (ég lét samt eftirréttinn eiga sig eftir matinn, sem var nú  þó eitthvað;)).

Og ég sá að um leið og ég kom í spilin að það hefði ekki verið séns fyrir mig að sleppa smákökunum! Spilafélagar mínir höfðu komið með smakk af jólasmákökunum og þær voru ekkert smá girnilegar. Og ótrúlega góðar. Svo var líka á boðstólnum konfekt úr dökku súkkulaði með hnetum, þvílíkt sælgæti! Svo ég át á mig gat. Ég var stillt og prúð á laugardeginum en át svo aftur á mig gat í jólahlaðborðinu á sunnudeginum, eins og ég hafði planað. Og allur dagurinn sá var bara í tómu tjóni, fékk mér bakkelsi í morgunmat o.fl. Vanalega borða ég bara venjulega fram að kvöldmat á sukkdegi, svo þessi dagur var ansi slæmur hjá mér.

Örlögin höguðu því svo þannig líka að ég fór tvisvar út að borða í vikunni. Annað skiptið fór ég á Saffran og hitt á Mann lifandi, svo ekki var um neina óhollustu að ræða. Ég get þó trúað að maturinn sé aðeins hitaeiningaríkari en það sem ég borða vanalega á kvöldin í þessu átaki mínu (eins og baunasúpan mín og fiskur), en auðvitað engin skelfing.

Svo ég missti 0.9 kg. þessa vikuna. Þessi vika sem er núna gengin í garð (en það byrjar alltaf ný vika þegar maður hefur stígið á vigtina) verður nú eðlileg. Reyndar mun bara  líða 6 dagar á milli vigtana, þar sem ég mun svissa yfir í fimmtudagana aftur núna. En svo er það jólavikan. Auðvitað veislumatur á aðfangadag og svo matarboð á annan í jólum. Ég mun þó gæta vel að mataræðinu hina dagana, og halda svo ótrauð áfram að settu markmiði. Það er nú við því að búast að desember setji smá strik í reikninginn hjá manni, er þaggi? :haha: Og svo mun allt falla í sömu skorður eftir hátíðirnar, þar sem ég mun enn keppast við árnar í þessum langa róðri mínum.

Jamm, þannig að ég mun næst stíga á vigtina á aðfangadag og svo þar á eftir á gamlárskvöld. Pínku skondið. Verð í jólafríi frá skólanum fram til 14. Janúar svo ég mun nýta tímann vel til að dúllast í hollu matarstússi, eins og að gera ávaxtasafa og svona, namm. Er alltaf of löt í það.

Vona að desember sé ekki að fara illa með ykkur, lesendur góðir, og hlakka til að heyra frá ykkur.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2009 10:54:09 / Spikbolla

Áthelgin mikla?!

Eins og ég minntist nú eitthvað á síðast ákvað ég að hafa vigtunar á föstudegi í þessari viku og þeirri næstu, áður en ég skipti aftur yfir á fimmtudagana. Er mjög ánægð með þessa viku, en ég losaði mig við 1.5 kg, sem gerir tæplega 22 kg. heildarmissi. Ég stefni ótrauð að janúarmarkmiðinu mínu :haha:

Sukkdagurinn mikli var síðasta laugardag. Og jeminn eini hvað ég át yfir mig! Ég og vinkona mín gerðum pizzu, þetta líka dúndur með pepperóní, fetaosti, beikoni o.fl. Ég kom með popp til hennar og eitthvað hnetumix, sem hún snerti varla á og ég sá um að úða í mig. Svo töfraði hún fram Hersey‘s súkkulaðibita (sem hún keypti í Bandaríkjunum) og ég sko missti mig alveg í þeim (sérstaklega þessum með möndlunum, hám!). Mér var hálf bumbult þegar ég kom heim um nóttina, og var enn södd þegar ég vaknaði morguninn eftir! Sem er eitthvað sem ég lendi aldrei í. Ég get yfirleitt borðað á mig gat án þess að finna nokkuð fyrir  því, hvað þá daginn eftir 8| En þetta var vægast sagt ekki þægilegt og er ekki eitthvað sem ég ætla að stefna að á sukkdögum, það eru hreinar línur.

En þessi helgi er ansi busy hjá mér í áti. Fer í jólahlaðborð í kvöld og á sunnudag! Er búin að vera alveg hörð á því alla vikuna (og er enn) að haga mér eins og manneskja í matnum í kvöld, og veit að það verður ekki mikið mál. En... svo er mér boðið í spil og smákökur eftir matinn! Það verður öllu erfiðara að fá sér ekki smákökurnar, væl, væl :(

Ég þakka kærlega fyrir komment vikunnar, alltaf gaman að heyra í ykkur, tala nú ekki um þegar um svona skemmtilegt hól er að ræða eins og frá Lesanda 8) Það er líka gott að sjá að þið eigið til gamla flík til að máta á meðan þið eruð í átaki. Ég á til fullan kassa af fötum niðrí geymslu (fyrir utan fullan fataskáp af fötum í öllum stærðum) og hlakka til að fara í mátunarleik núna í desember eftir jólin (þegar skólinn er búið og jólastressið yfirstaðið). Óska öllum góðrar helgi og góðs gengis.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2009 11:42:09 / Spikbolla

Læt ekki bjóða mér svona uppsteyt!

Eins og ég hef viðurkennt áður, þá er ég ferlega upptekin af blessaðri vigtinni og það fer allt í vitleysu hjá mér ef ég er ósátt við töluna sem kemur upp. Auðvitað á maður ekki að vera með þessar tölur á heilanum, þar sem þær segja alls ekki alla söguna, en það er bara svo brjáluð hvatning þegar talan fer niður. Algjört adrenalínskot sem kemur manni í gegnum vikuna fram að næstu vigtun. Svo ég varð fyrir svakalegum vonbrigðum þegar ég sá að vigtin hafði einungis farið niður um 400 gr. í gær og ákvað að ég léti hana ekki bjóða mér svona uppsteyt! :evil: Svo ég steig á hana aftur í dag og læt þá tölu standa, og hananú. Ég mun svo vigta mig á föstudegi næstu tvær vikurnar, en færa mig svo aftur yfir á fimmtudagana, haha. Það hentar vel að stíga á vigtina á föstudeginum 18. des þar sem sukkdagurinn í helginni á undan verður á sunnudegi.

Á þessum 8 dögum missti ég 1.1 kg., sem gerir 20.3 kg. missi á 13 vikum. Er ótrúlega ánægð með heildarárangurinn! Og þó að desember verði erfiður, þá stefni ég ótrauð á markmið mitt fyrir 7. janúar. Ég fer t.d. um þarnæstu helgi á tvö jólahlaðborð sömu helgina! Þ.e. á föstu- og sunnudeginum. Hið fyrra er reyndar lítið í sniðum, svo ég ætla mér bara að drekka vatn með matnum þar, fá mér einu sinni á diskinn og sleppa eftirréttinum. En svo á sunnudag fer ég á eðal, grand, fensí smensí hlaðborð þar sem ég ætla að sukka. Nammi namm!

Er soldið busy í lærdómnum, en ekki á barmi taugaáfalls ennþá. Hef verið jafn dugleg í ræktinni og vanalega, þ.e. eingöngu einn hreyfingarlaus dagur í vikunni. Núna fer sjúkranuddinu mínu að ljúka, en ég fer bara einu sinni í viku út desember. Það er synd og skömm þar sem erfitt er fyrir mig gera nokkrar af æfingunum sem ég þarf fyrir hnéð, í ræktinni (ekki fótalóð þar o.fl.). En ég verð að reyna að finna eitthvað útúr því...

Jamm, 20 kg. farin. Fyndið samt hvað ég finn lítinn mun, þannig... Ég geng enn í mörgum sömu fötunum og svona... En auðvitað, þegar maður er orðinn svona stór, er maður mikið í fötum úr teygjanlegu efni og svona, og því oft erfiðara að átta sig á því hvernig þau víkka. En fyrir 3 vikum eða svo fór fólk að taka eftir mun á mér og hæla mér í hástert. Og auðvitað mun munurinn verða sífellt greinilegri... það munar miklu meira á 10 kg. þegar maður fer niður í 97 kg, heldur en þegar maður fer í 117 kg. Svo ég hlakka bara til.

Í nóvember í fyrra keypti ég mér úlpu. Hún var ekki til í minni stærð svo ég keypti hana heldur þrönga, enda alveg handviss um að ég væri að fara að grennast, eins og oft áður :$ En auðvitað gerðist það ekki, heldur akkurat hið andstæða... stuttu eftir kaupin gaf hnéð sig og ég þyngdist á ljóshraða í þunglyndi mínu. Svo ég gat ekki einu sinni hneppt úlpunni að mér. Ég prófaði hana í haust og var svo fáránlega langt frá því að geta einu sinni rennt henni upp að ég óttaðist að ég kæmist ekki í hana fyrr en í vetrarlok. En svo, fyrir þremur vikum eða svo, ákvað ég að tékka á því hversu langt væri nú í að ég kæmist í þessa úlpulufsu. Og viti menn! Hún passaði! Og er bara rosa grennandi og allt saman. Ég var ekkert smá ánægð!

Jamm, það er eins og ég segi alltaf, það er algjör snilld að hafa einhverja þrönga flík við höndina til að máta reglulega þegar maður er í átaki. Þrönga flík sem er ekki úr efni sem gefur eftir, nota bene, sko! 

Óska öllum góðrar helgar og vona að hinn gullfallegi jóla-Jake (hér að ofan) komi ykkur í jólaskapið. Vonast líka til að heyra frá ykkur:!:

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.11.2009 11:53:38 / Spikbolla

Ekkert stress, vertu hress

1.8 kg. fokið þessa vikuna, og ég er komin í 107,7 kg. Var jafn dugleg í ræktinni þessa viku og þá seinustu, þ.e. eini hreyfingarlausi dagurinn var föstudagurinn. Ég þakka kærlega fyrir öll kommentin, og gaman var að sjá marga nýja kvitta fyrir sig. Það er frábært að fá svona hvatningu frá lesendum. Og eins og Lesandi og Anna Helga minntust á, þá er frábært að geta komist á átaksbloggsíður þegar maður sjálfur í átaki, til að fá hvatningu og slíkt frá öðrum. Ég hef alltaf mjög gaman að komast á síður átaksbloggara, og ef einhver ykkar heldur út slíkri síðu, hvet ég sá hinn sama að kommenta og benda á síðu sína :haha:

McApple skrifaði: ,,ég mæli með því að þú notir ekki þá afsökun að slaka á að þú sért að fara í próf.“ Ég er vissulega gjörsamlega sammála því. Auðvitað á maður ekki að notast við neinar afsakanir, en því miður þekki ég það (af biturri reynslu) hversu veikgeðja ég er þegar stressið hellist yfir mig. En! ég ætla að gera allar nauðsynlegar varúðarráðstafanir til að koma í veg fyrir það (því ég mun halda ótrauð áfram í gegnum þetta tímabil án nokkurra afsakanna), ákveða daga til að fara í ræktina (og ekkert mun koma í veg fyrir að ég fari á þeim tíma!) og eiga til nóg af hollu snarli þar sem svengdin virðist hellast yfir mig í svona langri setu. Og hananú 8)

Fyrir alla þá sem sitja yfir skruddunum í desember, og já bara fyrir ykkur allar sem hafið áhuga á hollu og góðu snarli, bendi ég á mandarínurnar. Hef verið að maula þær í vikunni og nammi namm, algjört sælgæti. Og í gegnum tíðina hafa þær alltaf verið snilld að hafa við höndina í jólaprófastressinu. Maður var alltaf andlausari í vorprófunum, haha.

Óska öllum góðrar helgar og hlakka til að heyra frá ykkur

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Heimsóknir
Í dag:  46  Alls: 40421